Saturday, January 08, 2005
Sælir félagar nær og fjær og gleðilegt ár!!!!!!
Hvað er nú títt????
Eins og allir geta séð hef ég verið alveg einstaklega dugleg að skrifa e-ð á þetta blessaða blogg mitt!!! En eins og kannksi sumir vita er ég komin heim í föðurlandið góða, en svo við rifjum upp síðan ég skrifaði seinast.............. ég fór semsagt til West Palm Beach í 2 og hálfa viku og var þar á þurru landi með snekkjuna í slipp. Lítið gerðist þar en að gera sín verk og fara svo út á kvöldin eða þegar við nenntum. Í byrjun desember lá leiðin aftur til Miami þar sem við vörðum 20 dögum. Þar var sama saga sinna sínu og fara á djammið sem voru misjafnlega skemmtileg og gáfuleg, sum í minninu en önnur í móðu:(( en þetta blessaðist allt að lokum held ég. Svo kom að því að við leystum landfestar 22 des í Miami og leið okkar lá til Port Lucaya á Bahamas þar sem við ætluðum að eyða jólunum. Leiðin þangað var ömurleg vegna sjógangs og við komust ekki inn til Lucaya vegna hans fyrr en að kvöldi 23 des og þá hafði ég eytt einum 10 klst við að faðma Gustafsberginn (klósettið), mín varð svona hrikalega veik þegar við vorum fyrir utan höfnina á akkeri og öldugangurinn kom á hliðar bátsins það er bara miklu verra heldur en hitt. Aðfangadagurinn var mjög hátíðlegur eða hitt þó. Vöknuðum um 8 leytið og byrjuðum að þrífa bátinn hátt og lágt utan sem innan. Var komin með nokkrar nýjar freknur um það leyti sem að klukkurnar voru að hringja inn jólin á Íslandi. En ég fékk þó að heyra það í símann og gat ég ekki varist því að tárin byrjuðu að streyma niður þegar ég heyrði það og talaði síðan við fjölskylduna. Á aðfangadag fór áhöfnin sem sagt á Burger King í hádeginu og var síðan skundað í Winn Dixie til að kaupa jólasteikina. Það var nú eitthvað lítið eftir orðið af jólamat þar í bæ en fundum einhverja 40 kg skinku sem við tróðum í ofninn og höfðum þar í eina 6 tíma. Áhöfnin ákvað að fara rólega í drykkjuna þetta heilaga kvöld en það er nú önnur saga að segja frá deginum á eftir. Jóladagur leit dagsins ljós með sól og hita. Við gerðum skyldur okkar en ákváðum að vera nú góð við okkur þar sem það var nú einu sinni fæðingadagur Jesús og fagna því ærlega sem að við gerðum með skotum af Absolut Vodka og tekíla og ekki vorum við að eyða tímanu í að blanda eitt né neitt. Þegar annar dagur jóla rann upp hélt ég að ég myndi deyja. Þynnkan var svo skelfileg að að er meirisegja erfitt að rifja hana upp núna án þessa að fá velgju. Þetta leiddi að því að mín drakk ekki nema hálfan skríplagos á áramótunum. Á gamlárskvöld vorum við heima hjá honum Gunna Chan mínum í mat og drykk framm yfir miðnætti og þá var haldið í Casino þar sem að nóttinni var eytt. Mikil hátíð er haldin á nýársdag, svokölluð Junkanoon!! Mögnuð skrúðganga með jólallögum í reggie stíl t.d. Hljóða Nótt!!
En eins og áður hefur komið fram er ég komin heim atvinnulaus, heimilislaus og allslaus en hef það bara nokkuð gott fyrir því. Ætli ég láti fjörðinn minn njóta nálægð minnar fyrst um sinn og svo held ég bara að ég fara að gerast borgarbarn aftur.
Sæl að sinni!!!
Posted at 02:08 pm by Anna Marín
Monday, November 15, 2004
Hallo elskurnar i kuldanum a Islandi
Hvad er nu ad fretta af ykkur tarna. Eg veit ad eg fae ekki verdlaun fyrir bestu bloggsiduna tetta arid en eg mun reyna a naesta ari. Tad hefur bara verid erfitt ad komast inn netid herna um bord.
Eg er semsagt a Miami Beach nuna en er ad fara til West Palm Beach a morgun i slipp med snekkjuna. Lifid herna uti er dasamlegt. Eg fer i "Kaupfelagid" a Ferrari sem ad eg mun taka myndir af og setja inn a siduna. Herna er sol og hiti alltaf og mig langar helst til ad rifa mig ur skinninu. Eg mun eyda Thanksgiving a Bahamas og verd tar vonandi fram yfir jol. Vid erum semgsag 4 i ahofn a Midnight Saga II, 2 stelpur og 2 strakar svo ad hlutskiptin eru jofn. Eg myndi segja ad allir aetu ad reyna ad komast i svona job tvi tetta er bara draumur ut i gegn. Eg sakna ykkar tarna heima en samt ekki svo mikid tegar eg hef allt tad sem eg hef herna. Eg fer ad taka fleiri myndir og skrifa meira tegar eg kem til West Palm, eg lofa tvi.
Elskurnar hafid tad sem allra best tarna a klakanum og eg bid ad heilsa ykkur i bili......
Posted at 02:34 am by Anna Marín